20.04.2026

Óttar Kolbeinsson Proppé

Yfirmaður stefnu, samhæfingar

og alþjóðamála

LEIÐARI

Inngangur

Inngangur

20.04.2026

Óttar Kolbeinsson Proppé

Yfirmaður stefnu, samhæfingar og alþjóðamála

20.04.2026

Óttar Kolbeinsson Proppé

Yfirmaður stefnu, samhæfingar og alþjóðamála

Á örfáum árum hefur gervigreind þróast úr því að vera heldur afmarkað viðfangsefni fræðimanna og þröngs hóp með góða tæknilega þekkingu yfir í eitt mest umbreytandi afl okkar samtíma. Þróun gervigreindartækni hefur verið ævintýralega hröð á síðustu misserum og þeim hefur fækkað sem efast um áhrifin sem þessi nýja tækni mun koma til með að hafa á samfélag okkar. Sífellt fleiri átta sig nú á því að gervigreind í þeirri mynd sem hún er að þróast í dag, eigi líklega ekki aðeins eftir að breyta einstökum verkferlum innan fyrirtækja eða eðli ákveðinna starfa, heldur beinlínis kalla á endurmat á því hvernig við skipuleggjum samfélag okkar, byggjum upp hæfni, verndum íslenska tungu og sköpum okkur umhverfi þar sem við nýtum þau nýju tækifæri sem tækninni fylgja til raunverulegrar verðmætasköpunar.

Hver man ekki eftir fjórðu iðnbyltingunni?

Umræða um þessi mál hófst raunar fyrr hér á landi en margir gera sér grein fyrir. Forsætisráðuneytið kom til að mynda af stað greiningu á áhrifum gervgireindar á íslenskan vinnumarkað og samfélag árið 2018, þá undir formerkjum hugtaksins fjórðu iðnbyltingarinar. Fáir nota hugtakið í dag, það hefur vikið fyrir gervigreindarbyltingunni, en ætli skólabækur framtíðarinnar muni ekki grípa til fyrra hugtaksins til að lýsa þeim umbrotatímum sem við lifum nú? Í greiningu forsætisráðuneytisins var reynt að horfa fram á veginn og búa íslenskt samfélag undir þróun sem þá var rétt farin að skjóta rótum en hefur sannarlega tekið stakkaskiptum síðan.

Samhliða þessari umræðu hófu stjórnvöld stórátak í íslenskri máltækni með það að markmiði að tryggja stafræna framtíð tungumálsins. Með máltækniáætlunum stjórnvalda var ráðist í mikla uppbyggingu á stórum gagnasöfnum fyrir tungumálið og ýmiss konar hugbúnaður búinn til hér innanlands til að taka betur mið af íslenskri tungu. Það starf gekk vonum framar og er ein skýrasta velgengnissaga íslenskrar tækniuppbyggingar á síðustu árum og hefur vakið athygli langt út fyrir landsteinana.

Á þeim tíma var ekki endilega ljóst hversu nátengd þessi uppbygging yrði gervigreind síðar meir. Þróunin síðustu ár hefur þó leitt í ljós að í litlu málsamfélagi verður staða tækninnar varla skilin frá stöðu tungumálsins. Eftir því sem gervigreind, ekki síst mállíkön, verður fyrirferðameiri, verður sífellt ljósara að málaflokkar máltækni og gervigreindar lifa hlið við hlið og haldast í hendur að mestu leyti.

Máltækniáætlanir, sem áður voru fyrst og fremst hugsaðar sem barátta fyrir vernd íslenskrar tungu gagnvart hröðum tæknibreytingum og þróun í alþjóðamálum, hafa því jafnframt orðið lykilforsenda þess að Ísland geti tekið þátt í gervigreindarbyltingunni á eigin forsendum.

Almannarómur þróast með tækninni

Þarna liggur einnig kjarninn í starfi Almannaróms. Frá árinu 2014 hefur Almannarómur – miðstöð máltækni unnið að því annars vegar að tryggja að íslenskan eigi sér framtíð í stafrænum heimi og hins vegar að gera nýjustu og bestu tækni aðgengilega og nothæfa fyrir íslenskan almenning, fyrirtæki og stofnanir. Þetta höfum við gert með stuðningi íslenskra stjórnvalda sem hafa fjárfest ríkulega í stafrænni framtíð íslenskrar tungu. Á síðustu árum hefur sú vinna í vaxandi mæli færst inn á svið gervigreindar, nánast óhjákvæmilega, enda er tungumálið sjálft orðið eitt helsta tólið sem nýtist til gervigreindarþróunar. En þótt verkefnin hafi tekið breytingum og sviðið breikkað, hefur grunnurinn haldist sá sami. Markmiðið er alltaf að byggja upp aðstæður þar sem ný tækni nýtist íslensku samfélagi; tækni sem virkar á íslensku og virkar við þær íslensku aðstæður sem hún verður notuð í.  

Í þessu samhengi hefur Almannarómur nýlega hafið þátttöku í þremur stórum verkefnum á sviði gervigreindar. Sú þátttaka endurspeglar hvernig stofnunin hefur þróast með tækninni sjálfri.

Í starfi Almannaróms hefur þannig á undanförnum árum byggst upp dýrmæt reynsla, þekking og innsýn á gervigreind sem við teljum mikilvægt að miðla áfram á vandaðan, traustan og hlutlægan hátt.

Heildarmyndin að koma fram

Upplýsingar um raunverulega notkun, innleiðingu, nálgun fyrirtækja, áhrif á störf og viðhorf almennings á Íslandi til gervigreindar hafa verið takmarkaðar. Á undanförnum mánuðum hefur þó bæst þar úr. Nýjar og gagnlegar kannanir hafa komið fram, sem mæla bæði notkun og viðhorf almennings og sérfræðinga innan fyrirtækja til gervigreindar og nýlega birti Hagstofan niðurstöður úr könnun sem hafði einnig verið lögð fyrir önnur Evrópuríki, sem gefur okkur góðan samanburð við þau.

Í skýrslunni hér á eftir verða þessar niðurstöður nýttar, settar í víðtækara samhengi og bornar saman við gögn nágrannaþjóðanna. Einnig koma hér fram nýjar greiningar frá Almannarómi; viðtöl við sérfræðinga á sviði gervigreindar, stjórnendur úr íslensku atvinnulífi og hagnýtar ráðleggingar og skrif starfsfólks Almannaróms, sem glímir daglega við helstu áskoranir og þau tækifæri sem vinna í kringum gervigreind hefur í för með sér.

Hvernig lesa má skýrsluna

Við gerum okkur fulla grein fyrir því að með þessari fyrstu útgáfu mistakist okkur áreiðanlega að svara öllum þeim spurningum sem brenna á fólki og fyrirtækjum um málefni gervigreindar í dag og að við snertum hér á færri sviðum gervigreindar en við helst vildum. Markmiðið með útgáfunni er þó að ná að kafa aðeins undir yfirborðið á þeim viðfangsefnum gervigreindar sem nú brenna helst á Íslendingum og draga fram breiða mynd af stöðunni í dag, sem vonandi nýtist sem ákveðin varða fyrir áframhaldandi umræðu og vinnu í málaflokknum.

Hér er farið yfir vítt svið; stefnu stjórnvalda, stöðu Íslands í samanburði við önnur ríki, hagnýt atriði fyrir fyrirtæki sem vilja hefja innleiðingu á gervigreind og gagnaöryggi, svo eitthvað sé nefnt. Jafnframt verður horft sérstaklega til einstaklingsins og þess hvernig fólk sem hefur jafnvel enn ekki þorað að stíga sín fyrstu skref í notkun gervigreindar getur komið sér af stað. Skýrslan er þannig hugsuð fyrir ólíka lesendur með ólíkar þarfir.

Kafli 1: Stefna og aðgerðir stjórnvalda

Kaflinn er hugsaður fyrst og fremst fyrir þá sem sem vilja skilja hvernig stjórnvöld á Íslandi hafa nálgast gervigreind hingað til, hvernig málaflokkurinn þróaðist hér á landi og hvernig Ísland stendur í samanburði við önnur ríki.

Kafli 2: Hagnýting og innleiðing hjá vinnustöðum

Kaflinn nýtist þeim sem vilja átta sig á því hvernig fyrirtæki og stofnanir geta byrjað að nýta sér gervigreind, hvar stærstu tækifærin liggja og hvað aðrir hafa lært af fyrstu skrefunum.

Kafli 3: Gagnaöryggi og ábyrg notkun

Kaflinn er ætlaður þeim sem þurfa að taka afstöðu til þess hvaða gögn megi nota í mismunandi gervigreindarlausnum, hvaða tól geti talist örygg og hvernig setja eigi skýran ramma utan um notkun gervigreindar innan vinnustaða og stofnana. Kafli 2 og 3 þjóna þannig best stjórnendum og þeim sem sjá um að innleiða gervigreinda á vinustöðum.

Kafli 4: Áhrif á störf og vinnumarkað

Kaflinn er hugsaður fyrir þá sem vilja glöggva sig á því hvaða áhrif gervigreind gæti haft á störf, hæfniþarfif og vinnumarkaðinn í víðara samhengi, bæði hérlendis og erlendis, á næstu árum.

Kafli 5: Íslenska í erlendum lausnum

Kaflinn nýtist þeim best sem vilja átta sig á því hvernig gervigreind getur nýst í daglegu lífi og starfi, jhafnvel þótt þeir hafi litla þekkingu eða reynslu af tækninni hingað til. Þar er sjónum beint að fyrstu skrefunum, gagnlegri notkun og því hvernig einstaklingar geta byrjað að nýta sér gervigreind í eigin þágu.

Kafli 6: Gervigreind og einstaklingurinn

Kaflanum er ætlað að veita notendum ágæta yfirsýn yfir hvaða alþjóðlegu gervigreindartól og stafrænar lausnir standa sig vel á íslensku og hvar lengst er í land fyrir okkur.

Lifandi skjal

Markmiðið er einnig að gera skýrsluna að lifandi skjali sem ávallt veitir bestu upplýsingar um stöðu gervigreindar á Íslandi á hverjum tímapunkti. Í ljósi þess hve kvikur málaflokkurinn er verður skýrslan svo uppfærð ársfjórðungslega til að byrja með, þar sem má búast við nýjum köflum og endurskoðun eldra efnis þegar sérstakt tilefni þykir til. Þar má til að mynda búast við nýjum köflum um gervigreind og menntun, gervigreind og orkumál, áhrif og innleiðingu gervigreindarreglugerðar Evrópusambandsins auk sérstakrar umfjöllunar um fullveldisgervigreind, sem varð nokkuð óvænt að hitamáli hér á landi rétt fyrir útgáfu skýrslunnar.

Von okkar er sú að þessi skýrsla reynist gagnlegt, upplýsandi og uppbyggilegt innlegg í umræðuna um gervigreind á Íslandi. Það er hagur okkar allra að Ísland nálgist þessa tækni af ábyrgð, metnaði og raunsæi, en þó með nægum hraða og ákveðni til að tryggja að hægt verði að nýta hana sem best fyrir samfélagið allt.

Almannarómur

Gróska, Bjargargata 1, 102 Reykjavík

almannaromur@almannaromur.is

Almannarómur

Gróska, Bjargargata 1, 102 Reykjavík

almannaromur@almannaromur.is

Almannarómur

Gróska, Bjargargata 1, 102 Reykjavík

almannaromur@almannaromur.is