Skýrslan dregur fram helstu gögn, greiningar og sjónarmið um stöðu gervigreindar á Íslandi árið 2026. Markmiðið er að veita aðgengilega og trausta heildarmynd af því hvernig tæknin er að þróast, hvernig hún er þegar farin að hafa áhrif hér á landi og hvaða tækifæri og áskoranir blasa við íslensku samfélagi næstu misseri. Skýrslan verður uppfærð ársfjórðungslega með nýjum köflum.